Komin aftur á frónið með nýbúan með mér. Eftir mikinn farangur og draslagang í gegnum flugvöllinn, 5 bjóra á mann og ærslagang lentum við loksins í Keflavík þar sem valdasvelti vegabréfsskoðunarmaðurinn tók að yfirheyra James um komu hans til Íslands.
How long are you staying? What will you be doing?
Fyrirgefðu, hvað í andskotanum kemur þér það við? Hvað er málið? það tók mig ekki langan tíma að pirrast á smáborgarlegheitunum og spyrja hvort þetta skipti virkilega máli, með 20 metra langa röð fyrir aftan okkur, 15 kg þungan handfarangur á bakinu og óbærilega heita flugstöð hreytti hann út úr sér EIGINLEGA og lét hann aftur fá vegabréfið. Gaman að vita hvernig við tökum á móti útlendingum sem koma til landsins. Ef Rebella hefði verið í essinnu sínu hefði ég byrjað að telja upp réttindi ES borgara hér á landi, þar sem ég er útlesin fram og aftur um dvalarleyfi nýbúans. grrrrrrrrrr
En allavega ágætt að vera komin heim, rétt á meðan maður getur hunsað dónalega framkomu kassadömunar í Bónus og hallærislegar fréttir um morgunógleði Lindu Pé.
Hlakka ekkert smá til að hitta ykkur yfir öllara eða djammi á laugardaginn.
Kiss kiss kiss
Rebella